Húsgagnasmíði er starfstengt nám á framhaldsskólastigi. Í því felst að nemendur öðlist skilning, þekkingu og færni til að takast á við viðfangsefni iðngreinarinnar; smíða, endurnýja og gera við húsgögn, innréttingar, hurðir, glugga og tréstiga og sinna fjölbreyttri sérsmíði úr gegnheilu tré og plötuefni.

Húsgagnasmíði er löggilt iðngrein. Meðalnámstími er fjögur ár að meðtalinni starfsþjálfun.

Kröfur

Umsækjendur þurfa að hafa lokið skyldunámi í samræmi við Aðalnámskrá grunnskóla, sjá nánar á heimasíðu skóla.

Námið hefur verið lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Eins veita fag- og stéttarfélög oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.

Námsskipulag

Húsgagnasmíði skiptist í almennar bóklegar greinar, sérgreinar og starfsþjálfun. Athugaðu hvort námið eða hluti þess geti verið kennt í fjarnámi.

Fyrstu önnina er farið í sameiginlegt einnar annar grunnnám bygginga- og mannvirkjagreina. Nemandi gerir námssamning við meistara í faginu þar sem starfsþjálfunin fer fram.

Að loknu námi

Að námi og starfsþjálfun lokinni er möguleiki á að fara í sveinspróf sem veitir rétt til starfa í greininni ásamt inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs eða byggingariðnfræði. Einnig er hægt að ljúka viðbótarnámi til stúdentsprófs.

Störf
Húsgagnasmiður
Leikmyndasmiður
Ekki þinn tebolli?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Náms- og starfsráðgjöf