Framreiðsla er nám á framhaldsskólastigi. Í náminu felst meðal annars að auka skilning og færni við móttöku gesta og undirbúning margvíslegs borðhalds, veita viðeigandi þjónustu og ráðgjöf ásamt gerð vín- og matseðla og áætlana fyrir veisluhöld. Möguleiki er að fá færni sem aflað er á vinnumarkaði metna.

Framreiðsla er löggilt iðngrein. Meðalnámstími er þrjú ár að meðtalinni starfsþjálfun þar sem fylgt er rafrænni ferilbók sem heldur utan um framvindu vinnustaðanámsins.

Kennsla

Framreiðslunám er kennt í Menntaskólanum í Kópavogi og hefur einnig verið í boði við Verkmenntaskólann á Akureyri.

Kröfur

Umsækjendur þurfa að hafa lokið skyldunámi í samræmi við Aðalnámskrá grunnskóla, sjá nánar á heimasíðu skóla.

Nám í framreiðslu hefur að hluta til verið lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Fag- og stéttarfélög veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.

Námsskipulag

Framreiðslunám skiptist í almennar bóklegar greinar, sérgreinar og starfsþjálfun. Fyrstu eina til tvær annirnar er farið í grunnnám í matvæla- og veitingagreinum og eftir það sérhæfa nemendur sig í framreiðslu. Nemandi gerir námssamning við meistara í faginu þar sem starfsþjálfunin fer fram.

Að loknu námi

Að námi og starfsþjálfun lokinni er möguleiki á að fara í sveinspróf sem veitir rétt til starfa í greininni ásamt inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs. Einnig er hægt að ljúka viðbótarnámi til stúdentsprófs.

Störf
Framreiðslumaður
Vínþjónn
Barþjónn
Ekki þinn tebolli?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Náms- og starfsráðgjöf