NÁM

Félagsmála- og tómstundanám

Félagsmála- og tómstundanám er starfstengt nám á framhaldsskólastigi. Í náminu felst meðal annars  að nemendur öðlist þekkingu og hæfni til starfa við undirbúning, skipulagningu og stjórnun félags- og tómstundastarfs fólks á öllum aldri. Raunfærnimat hefur farið fram í greininni.

Meðalnámstími er tvö til þrjú ár, samtals þrjár til fjórar annir í skóla og tólf vikna starfsþjálfun.

Kennsla

Félagsmála- og tómstundanám hefur verið kennt við Borgarholtsskóla. Athugaðu hvort námið eða hluti þess hafi verið kennt í fjarnámi.

Félagsmála- og tómstundabrú getur verið í boði við skóla þar sem félagsmála- og tómstundanám er kennt sem og hjá fræðslu- og símenntunarstöðvum.

Kröfur

Umsækjendur þurfa að hafa lokið skyldunámi í samræmi við Aðalnámskrá grunnskóla, sjá nánar á heimasíðu skóla.

Í boði er nám á félagsmála- og tómstundabrú en hún er til að auðvelda ófaglærðu fólki með starfsreynslu að öðlast starfsréttindi. Skilyrði eru að umsækjandi hafi náð 22 ára aldri, að minnsta kosti þriggja ára starfsreynsla og að hafa lokið starfstengdum námskeiðum.

Athugaðu hvort námið sé lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna.

Fag- og stéttarfélög veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.

Námsskipulag

Námið skiptist í sameiginlegar greinar þjónustubrauta, sérgreinar félagsmála- og tómstundarbrautar og vinnustaðanám. Nemendur geta sérhæft sig í starfi með ungmennum eða öldruðum.

Félagsmála- og tómstundabrú er ætluð til styttingar á félagsmála- og tómstundabraut og er eingöngu farið í sérgreinar, vinnustaðanám og starfsþjálfun.

Að loknu námi

Félags- og tómstundaliðar vinna með fólki á öllum aldri í félagsmiðstöðvum, skólum og hjá íþrótta- og félagasamtökum.

Störf
Félags- og tómstundaliði
Ekki þinn tebolli?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Náms- og starfsráðgjöf