NÁM

Dagforeldranámskeið

Námskeið eru í boði fyrir verðandi dagforeldra. Fjöldi kennslustunda hefur verið breytilegur en námskeiðið getur staðið yfir í nokkrar vikur, jafnvel mánuði. Í því felst meðal annars að veita fræðslu um uppeldi og umönnun barna, þarfir þeirra og þroska.

Kennsla

Námskeiðin eru haldin á vegum sveitarfélaganna og best að hafa samband við viðkomandi sveitarfélag. Nánari upplýsingar má finna í reglugerð um daggæslu barna í heimahúsum, bæklingi frá Reykjavíkurborg um daggæslu og á vef Kópavogsbæjar.

Kröfur

Ef áhugi er á að gerast dagforeldri er rétt að hafa samband við sitt sveitarfélag til frekari upplýsinga. Námskeið ættu að vera opin öllum þeim sem hafa hug á að starfa sem slíkir.

Námsskipulag

Námskeiðin geta verið uppbyggð á mismunandi vegu en í þeim skal farið yfir umönnun barna, barnasjúkdóma, slys, skyndihjálp og öryggi barna. Eins er farið yfir skyldur og réttindi dagforeldra.

Að loknu námi

Eftir námskeiðið má sækja um leyfi til að starfa sem dagforeldri til félagsmálanefndar/félagsmálaráðs sveitarfélagsins sem starfsemin á að fara fram í.

Störf
Dagforeldri
Ekki þinn tebolli?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Náms- og starfsráðgjöf