Bókmenntafræði er nám á háskólastigi. Í náminu er lögð áhersla á þróun bókmennta á Vesturlöndum þar sem nemendur fá þjálfun í að beita fræðilegum aðferðum og hugtökum.
• Grunnnámi lýkur með BA – gráðu
• Námstími er þrjú ár
Bókmenntafræði er nám á háskólastigi. Í náminu er lögð áhersla á þróun bókmennta á Vesturlöndum þar sem nemendur fá þjálfun í að beita fræðilegum aðferðum og hugtökum.
• Grunnnámi lýkur með BA – gráðu
• Námstími er þrjú ár
Nám í bókmenntafræði hefur verið kennt innan Íslensku- og menningardeildar Háskóla Íslands. Einnig hafa verið í boði námsleiðir til meistaragráðu.
Inntökuskilyrði eru stúdentspróf eða sambærilegt nám.
Námið er lánshæft til framfærslu og skólagjalda hjá Menntasjóði námsmanna. Fræðslusjóðir stéttarfélaga veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.
Kjarni námsins samanstendur af níu skyldunámskeiðum en önnur námskeið eru valfrjáls og úrvalið fjölbreytt svo sem í tengslum við einstaka þjóðlönd, ákveðnar bókmenntagreinar, strauma, rannsóknasvið eða einstaka rithöfunda.
Menntun í bókmenntafræði getur nýst á margvíslegum vettvangi svo sem í tengslum við fjölmiðla, útgáfu, auglýsingar, almannatengsl, menningarstarfsemi eða kennslu.
Náms- og starfsráðgjafar hjálpa til við upplýsingaleit og aðstoða að finna leiðir til að bæta færni í námi og efla í starfi.