NÁM

Bílamálun

Bílamálun er starfstengt nám á framhaldsskólastigi. Í náminu felst meðal annars að auka þekkingu og færni við meðhöndlun efna og málun ökutækja. Möguleiki er að fá færni sem aflað er á vinnumarkaði metna.

Bílamálun er löggilt iðngrein. Meðalnámstími er þrjú ár að meðtalinni starfsþjálfun þar sem fylgt er rafrænni ferilbók sem heldur utan um framvindu vinnustaðanámsins.

Kennsla

Nám í bílamálun hefur verið kennt við Borgarholtsskóla.

Grunnnám bíliðngreina hefur einnig verið kennt við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestraFjölbrautaskóla SuðurlandsFjölbrautaskóla SuðurnesjaTækniskólann og Verkmenntaskólann á Akureyri.

 
Kröfur

Umsækjendur þurfa að hafa lokið skyldunámi í samræmi við Aðalnámskrá grunnskóla, sjá nánar á heimasíðu skólans.

Nám í bílamálun er lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna.

Fag- og stéttarfélög veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.

Námsskipulag

Bílamálun skiptist í almennar bóklegar greinar, sérgreinar og starfsþjálfun.

  • Fyrsta árið er sameiginlegt grunnnám bíliðgreina en eftir það sérhæfa nemendur sig í bílamálun
  • Ekki er hægt að hefja nám til sveinsprófs í bílamálun nema hafa lokið grunnnáminu eða hliðstæðu námi sem skólinn metur
  • Nemandi gerir námssamning við meistara í faginu þar sem starfsþjálfunin mun fara fram

 

Athugaðu hvort námið eða hluti þess geti verið kennt í fjarnámi.

Að loknu námi

Að námi og starfsþjálfun lokinni er möguleiki að fara í sveinspróf sem veitir rétt til starfa í greininni ásamt inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs. Einnig er hægt að ljúka viðbótarnámi til stúdentsprófs.

Störf
Bílamálari
Ekki þinn tebolli?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Náms- og starfsráðgjöf