Arkitektúr er nám á háskólastigi. Í náminu er lögð áhersla á að nemendur tileinki sér hugmyndafræði hönnunar og skapandi greina. Í því felst meðal annars að efla færni og þekkingu við teikningu og hönnun bygginga og það ferli sem nær frá hugmynd til veruleika. Er til að mynda farið í hönnun rýmis, menningarfræði, byggingafræði, módelsmíði og arkitektúrteikningu.

Náminu lýkur með BA prófi. Námstími er þrjú ár.

Kennsla

Nám í arkitektúr hefur verið kennt innan arkitektúrdeildar Listaháskóla Íslands.

Kröfur

Inntökuskilyrði eru stúdentspróf úr framhaldsskóla eða sambærilegt nám.

Umsækjendur skulu hafa hlotið menntun eða reynslu í listum eða hönnun og geta sýnt fram á færni og þekkingu með því að senda inn sýnishorn af verkum í möppu ásamt umsókn. Sjá nánar um inntökuferlið.

Námið er lánshæft til framfærslu og skólagjalda hjá Menntasjóði námsmanna.

Fræðslusjóðir stéttarfélaga veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.

Námsskipulag

Nám í arkitektúr er fræðilegt og verklegt. Ýmist er farið í skyldufög og valfög öll þrjú árin. Kennt er í staðnámi.

  • Fræðileg námskeið og vinnustofur öll árin
  • Námskeið, lokaritgerð og útskriftarverkefni á þriðja ári
Að loknu námi

Eftir námið er hægt að fara í framhaldsnám á háskólastigi. Til að öðlast starfsréttindi sem arkitekt þarf MA próf í arkitektúr sem kennt er víða erlendis.

Störf
Arkítekt
Ekki þinn tebolli?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Náms- og starfsráðgjöf